|
Anna Rósa grasalæknir býr til öll hvít krem frá grunni úr bestu fáanlegum hráefnum. Íslensku lækningajurtirnar eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar. Kremin innihalda öll hátt hlutfall af lífrænu shea-smjöri og kakósmjöri sem eru einstaklega nærandi og rakagefandi fyrir húðina.
Nærandi dagkrem með lífrænum lækningajurtum fyrir venjulega eða viðkvæma húð. Hentar einnig sérstaklega vel fyrir þurra húð. Gengur vel inn í húðina og er því tilvalið undir farða. Mýkir og ver gegn veðri og vindum. Dagkremið innheldur vallhumal, morgunfrú , kamillu og lavender sem eru allar þekktar lækningajurtir fyrir húð. Nánar...
Rakagefandi 24 stunda krem með lífrænum lækningajurtum fyrir venjulega, mjög þurra eða þroskaða húð. Hentar vel bæði kvölds og morgna ásamt því að vera tilvalið undir farða. Inniheldur E- vítamín, apríkósukjarnaolíu og rósaolíu sem eru sérstaklega góðar fyrir þroskaða húð. 24 stunda kremið nærir, mýkir og viðheldur náttúrulegum raka húðar. Nánar ...
Græðandi og kláðastillandi krem með lífrænum lækningajurtum. Notað við þurrki, exemi og sóríasis. Græðikremið inniheldur lífrænan vallhumal, morgunfrú og kamillu sem notaðar hafa verið öldum saman gegn húðsjúkdómum. Inniheldur mikið af kakó- og sheasmjöri ásamt kvöldvorrósa- og E- vítamínolíu sem gefa nauðsynlegan raka og mýkt. Græðikremið inniheldur einnig lífrænar lavenderoíu- og piparmyntu ilmolíur sem eru kláðastillandi. Einnig er mælt með innvortis inntöku af rauðsmára og gulmöðru tinktúru gegn exemi og sóríasis. Nánar ...
Mýkjandi og græðandi handáburður með lífrænum lækningajurtum. Nærir naglabönd og þurrar hendur. Tilvalið á sprungur og þurrkubletti. Inniheldur lífræna möndluolíu og ilmolíur sem gefa léttan sítrónukeim ásamt því að vera sótthreinsandi. Nánar ...
Kælandi og kláðastillandi fótakrem með lífrænum lækningajurtum. Mýkir þurra húð, græðir sprungur og vinnur gegn sveppasýkingum. Inniheldur lífrænar ilmolíur svo sem eucalyptus, piparmyntu og tea tree sem örva blóðrásina og stilla kláða. Nánar ...
|