|
Fyrsta heimsókn til grasalæknis tekur um klukkustund. Farið er ítarlega yfir sjúkrasögu, mataræði og hreyfingu viðkomandi og blóðþrýstingur mældur ef þurfa þykir. Algengast er að fólk sem kemur til grasalæknis sé þegar búið að fá sjúkdómsgreiningu hjá hefðbundnum lækni. Í sumum tilfellum er viðkomandi bent á að leita hefðbundinna lækninga eða fá frekari greiningu á einkennum. Að viðtali loknu er metið hversu langan tíma meðferð mun taka. Þá eru sérblandaðar tinktúrur og te fyrir hvern og einn en skammturinn dugar í ca. 2 vikur. Venja er að meðferð taki 1-3 mánuði en það er þó mjög mismunandi eftir eðli sjúkdóms. Gerðar eru tillögur að breytingum á mataræði og hreyfingu ef ástæða þykir til. Að tveimur vikum liðnum kemur viðkomandi í viðtal í 30-50 mín. þar sem árangur er metinn og framhald ákveðið.
Tímapantanir:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og s: 6628328 9.00-16.00 virka daga.
Algengir kvillar
Grasalækningar hafa öldum saman verið notaðar gegn ýmsum tegundum sjúkdóma. Algengt er að leitað sé til grasalæknis vegna langvarandi veikinda sem illa hefur gengið að ráða bót á með hefðbundnum lækningum. Grasalæknir getur ekki lofað lækningu en margar lækningajurtir eru taldar geta hjálpað til við eftirfarandi sjúkdóma:
- hormónaójafnvægi, svitaköst, óreglulegar blæðingar og fyrirtíðaspenna
- magabólga, magasár, hægðatregða, niðurgangur og uppþemba
- exem, psoriasis, þrálát sár og sveppasýkingar
- liðagigt, slitgigt, vefjagigt og vöðvabólga
- höfuðverkir og mígreni
- streita, kvíði, svefnleysi, þreyta og vægt þunglyndi
- bjúgsöfnun, góðkynja stækkun blöðruhálskirtils, blöðrubólga
- astmi, kvef, hálsbólga, flensa og hósti
- ofnæmi og óþol
Verðskrá
Fyrsta viðtal 60 mín. kr. 7.900 Annað viðtal 30-50 mín. kr. 5.900 Tinktúrur 200 ml kr. 3.900 Tejurtir 50 gr kr. 800 Smyrsl 30 ml kr. 1.800 Krem 30 ml kr. 2.800
Börn, eldri borgarar, öryrkjar og atvinnulausir fá afslátt af viðtalstímanum.
- Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við óhefðbundnar lækningar.
- Forföll skulu tilkynnt með minnst sólarhrings fyrirvara.
- Anna Rósa áskilur sér rétt til breytinga á verðum án fyrirvara.
|