Sérblandaðar vörur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Í grasalækningum eru lækningajurtir notaðar eins og þær koma fyrir úr náttúrunni, ýmist þurrkaðar eða ferskar. Mjög mismunandi er hvaða plöntuhlutar eru nýttir. Í sumum tilfellum er hægt að nota alla hluta lækningarjurtarinnar en í öðrum einungis t.d. blóm. Margar aðferðir eru notaðar til að vinna virk efni úr lækningajurtum og má þar nefna tinktúrur, olíur, ilmolíur, duft, hylki, töflur, te, seyði og smyrsl. Algengast er að grunnurinn sem notaður er til að framleiða vörur úr lækningajurtum sé vínandi, vatn eða olía.

Anna Rósa grasalæknir notar að langmestu leyti íslenskar jurtir, villtar og lífrænar sem hún tínir sjálf. Hún notar einnig nokkrar valdar erlendar jurtir sem ekki er auðvelt að rækta á Íslandi svo sem sólhatt, hvítlauk og engifer. Allar innfluttar lækningajurtir eru lífrænt ræktaðar og eingöngu keyptar frá fyrirtækjum með viðurkennda vottun.

Venja er að þeir sem koma til Önnu Rósu fái bæði tinktúru og te. Tinktúran er yfirleitt blanda af 4-5 jurtum og er alltaf sérblönduð fyrir hvern og einn. Teblöndur innihalda gjarnan 2-3 jurtir. Einnig býr hún til græðandi smyrsl úr lækningajurtum og sérblandar lífrænum ilmolíum út í þau fyrir hvern og einn.

Tinktúrur

Að búa til tinktúrur úr lækningajurtum er aldagömul hefð og tíðkaðist á Íslandi áður fyrr þó lítið hafi verið um það seinustu áratugi. Erlendis hefur þessi hefð haldist sterk alla tíð og eru tinktúrur mikið notaðar í ýmsum löndum. Þegar tinktúra er búin til er lækningajurt látin liggja í vínanda í ákveðinn tíma. Vökvinn er svo síaðar frá, settur á flöskur og geymdur við herbergishita. Styrkleiki vínandans er mismunandi eftir því hvaða lækningajurt er verið að nýta og hvaða hluti jurtarinnar er notaður. Ekki þarf að geyma tinktúrur í ísskáp og endingartími er 3 ár. Sérblönduð tinktúra inniheldur yfirleitt 4-5 lækningajurtir. Skammtastærð er breytileg eftir því hvað er verið að fást við en algengt er að tekin sé 1 msk þrisvar sinnum á dag.

Anna Rósa útbýr tinktúrur sem hægt er að kaupa í mörgum apótekum og heilsuvöruverslunum.

Te

Þegar te er búið til er sjóðandi vatni hellt á mýkra hluta jurta, svo sem blóm, laufblöð og fræ. Algengast er að miða við 1-2 tsk af þurrkuðum jurtum í bolla og dagskammtur er oftast 1 bolli þrisvar til fjórum sinnum á dag. Sjóðandi vatni er hellt yfir jurtirnar og látið standa í allt að 10-15 mínútur. Þá eru jurtirnar síaðar frá áður en teið er drukkið. Eins er mjög hentugt að setja 2-3 msk af jurtum í hitabrúsa (750 ml), hella sjóðandi vatni á og loka. Síðan má byrja a drekka teið eftir 15 mínútur og klára úr hitabrúsanum yfir daginn. Jurtirnar eru síaðar frá í hvert skipti sem hellt er úr brúsanum, en best að setja þær síðan í hitabrúsan aftur og láta þær liggja áfram yfir daginn, því þannig næst mestur kraftur úr þeim. Ef teið er orðið sterkt og rammt síðla dags má bæta í meira sjóðandi vatni.

Seyði

Seyði er búið til úr hörðum hlutum lækningajurta s.s rótum, berjum, fræjum og berki trjáa. 1-2 teskeiðar af plöntuhluta á móti rúmum bolla af vatni er soðið í potti í ca. 10-15 mínútur. Algengt er að drekka 3-4 bolla á dag.
Greinarmunur er gerður á tei og seyði í grasalækningum. Nauðsynlegt er að gera seyði af hörðum plöntuhlutum eins og rótum og berki, því öðruvísi leysast virku efnin í þeim ekki upp. Þegar seyði er gert er algeng skammtastærð 2-3 msk af rótum eða berki í pott (má ekki nota álpott) með 750 ml af köldu vatni. Suðunni er komið upp og seyðið látið malla í opnum pottinum við vægan hita í 30-40 mínútur. Miðað er við að þriðjungur vatns gufi upp við suðu og eftir standi um 500 ml af seyði. Síðan er seyðið síað og hefðbundin skammtastærð er 1-3 bollar á dag. Seyði geymist ágætlega í ísskáp í 3 daga.

 

 

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates