|
Smyrsl |
|
|
|
Frá örófi alda hafa verið unnin smyrsl úr lækningajurtum og hefur Anna Rósa grasalæknir notað slík smyrsl með góðum árangri um árabil. Einstaklingsbundið er hvort fólki hentar betur smyrsl eða hvít krem við húðkvillum. Íslensku lækningajurtirnar eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.
Græðandi smyrsl með lífrænum lækningajurtum fyrir sár, sprungur og húðkvilla. Sárasmyrslið inniheldur mjaðjurt, haugarfa, vallhumal og birki sem öldum saman hafa verið notaðar gegn sárum og útbrotum. Inniheldur mikið af kakó- og sheasmjöri sem græðir og mýkir. Sárasmyrslið inniheldur einnig lífræna lavender ilmolíu sem stillir kláða og er þekkt fyrir græðandi áhrif á brunasár. Án rotvarnaefna. Nánar ...
Mýkjandi smyrsl með lækningajurtum til varnar bleiuútbrotum og þurri húð. Ver gegn veðri og vindum. Hentar vel á þurrar kinnar og kuldaútbrot. Inniheldur lækningajurtirnar morgunfrú, haugarfa og kamillu sem allar hafa mikið verið notaðar í smyrsl fyrir ungabörn. Án rotvarnar- og ilmefna. Nánar ...
Verndandi smyrsl gegn sliti á meðgöngu með lækningajurtum og jojobaolíu. Reglubundin notkun mýkir og eykur einnig teygjanleika spangar. Tilvalið fyrir sárar og sprungnar geirvörtur, má nota með brjóstagjöf. Inniheldur lækningajurtirnar mjaðjurt, haugarfa, kamillu og morgunfrú sem styrkja húðina á meðgöngu. Án rotvarnar- og ilmefna. Nánar ...
|
Útsölustaðir:
-
Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.
|