Fíflablöð & birki Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Fíflablöð & birki - talin vatnslosandi

Margar lækningajurtir eru taldar vatnslosandi en að öðrum ólöstuðum eru lífræn túnfíflablöð talin hafa hvað mesta virkni og eru þau aðaluppistaðan í tinktúrunni.

Hún inniheldur einnig birki, klóelftingu, mjaðjurt og gulmöðru sem öldum saman hafa verið taldar vatnslosandi.

Innihald

20% vínandi, túnfífill* (taraxicum officinalis), birki* (betula pubescens), klóelfting* (equisetum arvense)mjaðjurt* (filipendula ulmaria), gulmaðra* (galium verum)

*lífrænt



Notkun

1 msk (10ml) þrisvar á dag með mat. Ekki skal neyta meira en ráðlagt er. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun. Hættið notkun ef vart verður óeðlilegra einkenna.

Viðvörun

Geymist þar sem börn ná og sjá ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, börn undir 18 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Fæðubótarefni

 

Útsölustaðir:

  • Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.

Anna Rósa grasalæknir hefur um árabil búið til sínar eigin tinktúrur úr íslenskum og erlendum lækningajurtum. Tinktúrurnar hefur hún sérblandað í handa hverjum og einum.  Á þeirri reynslu byggir Anna Rósa uppskriftirnar af tinktúrunum sem eru að langmestu leyti úr ferskum íslenskum lækningajurtum. Þær eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar, eins og engifer og sólhattur sem vaxa ekki á Íslandi eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates