|
Sólhattur & hvönn |
|
|
- taldar góðar gegn hálsbólgu, kvefi og flensu
Lífrænn sólhattur, hvönn og vallhumall eru helstu lækningajurtirnar í þessari tinktúru en þær hafa allar verið taldar góðar gegn kvefi, hálsbólgu og flensu.
Einnig inniheldur tinktúran garðablóðberg, engifer og chilipipar sem samkvæmt gömlum húsráðum reynast vel gegn kvefi og flensu.
Innihald
40% vínandi, hvönn* (angelica archangelica), sólhattur* (echinacea angustifolia), vallhumall* (achillea millefolium), garðablóðberg* (thymus vulgaris), engifer* (zingiber officinalis), chillipipar* (capsicum minimum)
*lífrænt
Notkun
1 msk (10ml) þrisvar á dag með mat. Ef ætlunin er að nota tinktúru í forvarnarskyni er 1 tsk (5ml) á dag nóg. Ekki skal neyta meira en ráðlagt er. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun. Hættið notkun ef vart verður óeðlilegra einkenna.
Viðvörun
Geymist þar sem börn ná og sjá ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, börn undir 18 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu. Notist ekki samhliða ljósameðferð eða miklum sólböðum.
Fæðubótarefni
|
Útsölustaðir:
-
Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.
Anna Rósa grasalæknir hefur um árabil búið til sínar eigin tinktúrur úr íslenskum og erlendum lækningajurtum. Tinktúrurnar hefur hún sérblandað í handa hverjum og einum. Á þeirri reynslu byggir Anna Rósa uppskriftirnar af tinktúrunum sem eru að langmestu leyti úr ferskum íslenskum lækningajurtum. Þær eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar, eins og engifer og sólhattur sem vaxa ekki á Íslandi eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.
|
|