Þessi kjötsúpa inniheldur mikið af lækningajurtum og grænmeti og í mínum huga er það alvöru kjötsúpa. Hún inniheldur það mikið af lækningajurtum að ég er sannfærð um að hún sé góð forvörn gegn kvefi og flensu. Hvítlaukur, engifer og chilipipar styrkja ónæmiskerfið ásamt því að draga úr sýkingum og hafa bólgueyðandi áhrif. Hvönn, óreganó og blóðberg eru einnig þekkt fyrir að hafa styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið ásamt fjölmargra annara eiginleika.

Notaðu hugmyndaflugið

Í þessa súpu er mjög gott að nota skessujurt í staðinn fyrir hvannarblöð eða bæta henni við aukalega. Ef ekki er til hvönn eða skessujurt gefa bæði óreganó og basil mjög gott bragð og ég nota stundum líka smávegis af birkiblöðum. Notaðu hugmyndaflugið og bættu við því kryddi sem þér dettur í hug.

Alvöru kjötsúpa

  • ½ –1 blaðlaukur
  • 6–7 hvítlauksrif
  • 2 cm fersk engiferrót
  • ½ ferskur rauður chili (án fræja)
  • ½ sæt kartafla
  • 2,3 l vatn
  • 1 msk. grænmetiskraftur
  • 2–3 lambalærissneiðar
  • 2 msk. hvannarblöð og/eða basil/óreganó
  • 1 msk. blóðberg eða garðablóðberg (timjan)
  • 1 spergilkál eða grænkál
  • jómfrúarólífuolía
  • sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar

Skerið smátt blaðlauk, hvítlauk, engifer, sæta kartöflu og chili og léttsteikið í olíu í súpupotti. Bætið vatni og grænmetiskrafti út í og látið suðuna koma upp. Skerið lambalærissneiðar í litla bita, hreinsið beinin frá og léttsteikið í olíu á pönnu, með salti og pipar, og setjið síðan í pottinn. Bætið út í kryddjurtum og sjóðið í minnst 40 mínútur á lágum hita en helst í rúman klukkutíma. Bætið út í skornu spergilkáli eða grænkáli þegar u.þ.b. 10 mínútur eru eftir af suðutíma.

Um höfundinn

Anna Rósa er grasalæknir, framkvæmdastjóri, rithöfundur og alþjóðlegur fyrirlesari. Fyrst og fremst er hún þó með ástríðu fyrir öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur.

Sjá nánar
Anna Rósa grasalæknir