Græðikrem

6.490 kr.

(55 umsagnir frá notendum)

Ertu með kláða? Dreymir þig um húð sem er til friðs? Græðikremið er græðandi, kláðastillandi og bólgueyðandi, allt í senn. Sérhannað gegn þurrki og bólgum. Sérlega áhrifaríkt á exem, sóríasis, sár og sprungur. Öflugur rakagjafi fyrir þurra húð.

 

Græðikremið er í pakkatilboðinu – græðandi, pakkatilboðinu – extra-rakagefandi, pakkatilboðinu exem og sóríasis og pakkatilboðinu – rósroði.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

50 ml

SKU: 1003 Categories: , ,

Lýsing

Notkun: Berðu ríkulega á viðkomandi svæði þrisvar á dag eða oftar. Gengur mjög fljótt inn í húðina. Má nota á allan líkamann, þ.m.t. andlit, hársvörð og í kringum augu.

Áhrif:

  • Græðir og róar exem og sóríasis
  • Dregur úr kláða og bólgum
  • Öflugur rakagjafi fyrir þurra húð
  • Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum

Húðgerð:  Fyrir þurra eða skaddaða húð.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Græðikremið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Kremið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Ég notaði græðikremið hennar Önnu Rósu á augnlokin mín þar sem að ég er með exem og má ekki nota sterakrem frá læknum á andlitið, ég sá strax árangur eftir 1 viku og eftir nokkrar vikur var ég alveg laus við kláða og húðin var alveg hætt að flagna af augnlokunum. Ég nota einnig dagkremið hennar Önnu Rósu vegna þess að ég fæ oft þurrkubletti á andlitið og ef ég er dugleg að bera dagkremið á þá verð ég mjúk og fín eftir nokkra daga. Einnig finnst mér mjög gott að nota dagkremið eftir sturtu og áður en ég mála mig.

Guðrún Dís Emilsdóttir

Dóttir mín sjö mánaða hefur verið með afar slæmt exem og eins og þú sérð á myndinni þá hefur það orðið að slæmu sári á hnéinu hennar, en ég er búin að vera í miklu veseni að finna eitthvað krem sem virkar. Ég er búin að nota græðikremið þitt í viku núna, ber á hana þrisavar á dag og árangurinn er ótrúlegur og exemið svo gott sem farið allstaðar. Ég get bara sagt takk fyrir okkur og takk fyrir alla þína vinnu sem liggur í því sem þú gerir!

Berglind Karen Ingvarsdóttir

Dóttir mín sem er 12 mánaða er með svo hrikalega viðkvæma húð að ég er stundum í vandræðum með hana. Hún var með svakalega niðurgangspest í tvær vikur fyrir stuttu síðan og var komin með svo heiftarleg blæðandi sár á bossann að ég endaði með hana niðrá barnaspítala því engin krem voru að virka og ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga. Læknirinn mælti nú bara með barnapúðri sem ég keypti EKKI þannig ég græddi ekkert á honum. En svo birtist amman með krem frá þér og ég hafði svo sem engu að tapa og prófað á bossann. Ég lýg ekki þegar ég segi að ég nánast horfði á sárin gróa á barninu á örskömmum tíma. Það var kremið Græðikrem sem gjörsamlega sló öllum hinum kremunum við. Langaði bara að deila þessu og segja í leiðinni takk fyrir okkur!

Silja Rut Ragnarsdóttir og Soffía Ísabella

Græðikremið frá Önnu Rósu hefur virkað mjög vel á sóríasis hjá mér. Ég hef líka tekið inn tinktúruna Rauðsmára og gulmöðru í fjóra mánuði og er orðinn mjög góður í húðinni þrátt fyrir tölverða streitu og vinnuálag.

Kristleifur Daðason

Í 36 ár hef ég glímt við sóríasis og hef lengi leitað að græðandi kremi sem hefði gagnger áhrif á sjúkdóminn. Hef sennilega eins og flestir sóríasissjúklingar prófað öll þau krem sem nöfnum tjáir að nefna. Græðikremið frá Önnu Rósu grasalækni er fyrsta kremið sem hefur á áhrifaríkan og viðvarandi hátt dregið úr bólgum í sárunum og þar sem húðin er þynnst eru blettirnir á undanhaldi. Það er auk þess hæfilega feitt, þannig að ég get borið það á mig á morgnana eftir sturtu, án þess að það smitist í fötin mín. Síðast en ekki síst hef ég losnað við kláðann, sem ég var illa haldin af áður en ég tók að nota græðikremið.

Guðrún Ingólfsdóttir

Mig langaði að segja þér frá því að ég hef oft slasað mig á fótunum og núna fyrir mánuði kom eitt sárið á hægri sköflunginn og á versta stað þar sem blóðstreymið er hvað minnst. Ég ákvað í samráði við hjúkrunarfræðinginn sem skiptir á því að nota græðikremið frá þér og viti menn, smátt og smátt er það að gróa. Það hefur alltaf tekið um tvo mánuði að gróa hjá mér, en ég er með undirliggjandi sjúkdóma eins og Lúpus og Sjögren og hætta á sýkingum mikil. Þetta sár er ljótt, ca. 3 cm og engin húð á því vegna þess það er ekki hægt að sauma vegna þess að húðin er svo viðkvæm og ekki var hægt að plástra þetta saman. Þetta krem þitt er alveg frábært, það hefur komið í veg fyrir það að ég fengi drep, reyndar hefur líka verið notað sýkladrepandi krem í kring en það er samt að vinna vel í sárinu.

Erla Ó. Melsteð

Einu sinni átti ég alls konar krem og ýmisleg krem. Ég átti andlitskrem, fótakrem, handáburð, boddílósjon og svo auðvitað sérstakt krem fyrir exemið. Já og annað krem fyrir þurrkblettina sem alltaf láta á sér kræla á veturna. Þetta voru heilmargar krukkur og túpur og stundum vildi þetta ruglast og týnast hjá mér. En nú er lífið orðið einfaldara. Ég keypti græðikremið frá Önnu Rósu grasalækni fyrst til að prófa á þurrkblettina sem fylgja köldu veðri, og það virkaði vel. Svo varð ég uppiskroppa með handáburð einn daginn, greip græðikremið og það virkaði fínt. Svona hélt þetta áfram þar til græðikremið var orðið eina kremið í húsinu. Miklu betra.

Sæunn Þorsteinsdóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, kvöldvorrósarolía* (Oenothera biennis), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, lavender* (Lavendula officinalis), piparmynta* (Mentha piperita).

Endurvinnsla

  • 100% endurvinnanleg glerkrukka
  • 100% endurvinnanlegt lok úr polypropylene/polyethylene plasti
  • 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
  • Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni

55 umsagnir um Græðikrem

  1. Helga Snædal

    Ég hef notað Græðikrem frá Önnu Rósu með góðum árangri á exem húð dóttur minnar síðasta árið. Það er dásamlegt á þurra húð og ilmar svo vel í þokkabót!

  2. þóra þorsteinsdóttir

    þetta er besta krem sem ég hef fengið til þess að slá á kláða vegna flóabita bjargaði mér alveg

  3. Sigríður Sigmardóttir

    Ég hef notað Dagkremið þitt og Græðikremið núna í nokkur ár eftir að hafa fengið slæmt rósroðakast eitt sumarið.
    Ég er mjög ánægð með bæði kremin og þó sérstaklega Græðikremið.

    Mig langaði að benda þér á að strákurinn minn er búinn að vera með Flökkuvörtur á síðunni og öðru lærinu og þegar ég fattaði að hann var búinn að vera með þetta frá í desember ákvað ég að prófa Bóluhreinsinn og Græðikremið.
    Á c.a. 10 dögum er allt annað að sjá hann.
    Hann var kominn með stóra, útstæða og ljóta vörtu á síðuna ásamt mörgum litlum klösum en það virtist sem þessi stóra væri orðin sýkt því henni fylgdi mikill kláði.
    Hann var mjög rauður og klæjaði mikið.
    Á sólarhring róaðist húðin sjáanlega og roðinn minnkaði.
    Núna 10 dögum seinna datt stóri hraukurinn og stóra vartan er örugglega þrisvar sinnum minni og litlu útbrotin næstum orðin húðlit og lítil.

    Mæli með að nota þessa blöndu þar til útbrotin eru alveg horfin.

  4. Rósa Dröfn

    Notaði mitt á bit eftir lúsmý! Sló helling á kláðann 🙂 æðislegt krem !

  5. Guðný Guðmundsdóttir

    Ég keypti Græðikremið frá þér og notaði það á sár sem ég fæ vegna sjúkdóms sem ég er með og kremið gjörsamlega sló í gegn ég keypti líka Fótakremið fyrir annan fjöldskyldumeðlim sem er að glíma við sveppasýkingar á húð og ég læt vita ef sú meðferð gagnast honum takk fyrir þetta dásamlega Græðikrem sem bjargaði mínum sárum mæli eindregið með því. kv Guðný

  6. Guðrún Dís Emilsdóttir

    Ég notaði græðikremið hennar Önnu Rósu á augnlokin mín þar sem að ég er með exem og má ekki nota sterakrem frá læknum á andlitið, ég sá strax árangur eftir 1 viku og eftir nokkrar vikur var ég alveg laus við kláða og húðin var alveg hætt að flagna af augnlokunum.

  7. Guðrún Svanborg Hauksdóttir (verified owner)

  8. Þyrí Marta Baldursdóttir (verified owner)

  9. Sigríður Ingibjörg Jensdóttir (verified owner)

  10. Andrés Hugo de Maaker (verified owner)

  11. Kristín Thorstensen (verified owner)

    Er lítið farin að nota það en líst vel á það .

  12. Hildur E. (verified owner)

    Kremið er mjúkt og gott og fer vel inn í húðina Mildur náttúrulegur ilmur. Ég hlakka til að nota það nú þegar kólna tekur í veðri og þurrkablettirnir fara að láta á sér kræla 🙂

  13. Þyrí Marta Baldursdóttir (verified owner)

    Maðurinn minn sem er mikill psoriasis sjúklíngur, búinn að prufa öll heimsins krem. Komst í krukkuna mína „græðikrem“ og síðan hefur í raun ekkert annað komist að hjá honum. Segir að þetta sé eina kremið sem virki. Búin að kaupa margar krukkur síðan þetta var.

  14. Guðmundur Sigurðsson (verified owner)

    Hef notað kremið í nokkurn tíma eftir sund. Ber á andlit og finnst það vera mér gott.

  15. Kristín Birna Ólafsdóttir (verified owner)

  16. Jónína (verified owner)

    Græðikremið hefur mjög góð áhrif á þurrkublettina

  17. Kristín Egilsdóttir (verified owner)

    Frábært krem

  18. Hanna Smaradottir

    Elska þetta krem, í fyrsta lagi fyrir lykt og áferð en ekki síður fyrir hvað það er rakagefandi og róandi fyrir mína þurru og viðkvæmu húð

  19. Aslaug Guðmundsdottir (verified owner)

    Mjög gott krem til að nota á þurrk á höndum. Var með þurrk á höndunum í sauðburði og þetta hefur bjargað mér

  20. Þorkatla (verified owner)

    Lyktin er kannski ekki sú besta en kremið er æðislegt. Húðin mun mýkri og ég flagna ekki á fótleggjunum eins og áður.

  21. Brynja Jónsdóttir (verified owner)

    Mjög gott krem sem mér líður vel að nota

  22. Anonymous (verified owner)

    Frábært græðandi krem!

  23. Þyrí Baldursdóttir (verified owner)

    Flott og notað mikið

  24. Anonymous (verified owner)

    Mjög gott á útbrot – mýkjandi og græðandi

  25. Þórunn Magnúsdóttir (verified owner)

    Ekki búin að prufa nógu mikið til að geta sagt til um græðikremið.

  26. Guðrún Jónsdóttir (verified owner)

    Dásamlegt krem. Slær á kláða og kælir.

  27. Svanfríður Guðmundsdóttir (verified owner)

    Gott bæði á sár sem eru að gróa.

  28. Anna Helga Kristinsdóttir (verified owner)

    Hef notað græðikrem um langan tíma og líkar vel við. Á í erfiðleikum með exemþurrbletti á enni.

  29. Gerður Árnadóttir (verified owner)

    Mjög gott róandi krem

  30. Oddný Jóhannsdóttir (verified owner)

    Hlakka til að sjá betur hve vel það mun virka, lýtur vel út í byrjun

  31. Anonymous (verified owner)

    Awesome 🙏🏻

  32. Valur J Júlíusson

    Skinnlaus á milli tánna, sársukinn og pirringurinn óþolandi, en bjargvætturinn er hjá Önnurósu „Græðikremið“ Divine Healing Creme, eins og stendur á krukkunni sem mér áskotnaðist, Allur pirringur og sársauki hvarf eða róaðist og allt varð gott aftur augnabliki eftir að ég bar kremið á og skinnið er birjað að myndast á öðrum degi. Þakka þér fyrir Anna Rósa.

  33. Sólveig Hinriksdóttir

    Græðikrem
    Ég er búin að vera að berjast við frunsur í langan tíma, og búin að nota ótal gerðir af kremum.
    Svo prófaði ég græðikremið og eftir nokkra daga var ég laus við frunsurnar – og mér finnst að þær séu að koma aftur, ber ég græðikremið á og hef sloppið við að fá aftur frunsu.
    Snilldar krem

  34. Grímur Andrésson

    Græðikremið hefur hjálpað mikið að draga úr bólgum og kláða í soriasis útbrotum. Sárakremið er lika alveg ótrulega gott, þaðallra besta af sarakremum sem við höfum prófað.

  35. Sesselja Steinólfsdóttir (verified owner)

    Mjög góð vara

  36. Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir (verified owner)

    virkilega gott krem

  37. Líney Þorkelsdóttir (verified owner)

    Græði kremið gerir kraftaverk á exem sonar míns. Við erum búin að prufa allskyns krem og erum ég og hann sammála að þetta virkar best. Þurfum ekki nota eins oft stera krem ef við erum að nota Græðikremið með.

  38. Elín S. (verified owner)

    Gott og verulega græðandi.

  39. Anna María (verified owner)

    Græðikremið er ómissandi og er notað á bæði menn og dýr hér á bænum. T.d. á lúsmýbit og bara almenn sár og skeinur. Notaði það í fyrrasumar á hryssu,sem virtist fá e.k. blöðruofnæmi og það fór heil krukka á hana! Enda svæðið allur framhlutinn en hún lagaðist á 3 til 4 dögum.

  40. Hulda (verified owner)

    Mjö gott á allann kroppinn <3

  41. Eva (verified owner)

    Græðikremið er frábær valkostur á exemið ef þú vilt ekki nota sterakrem! Mér tekst að halda útbrotunum niðri og ekki verra að ég get notað kremið á litla kroppa 🙂

  42. Hulda (verified owner)

    Gott að nota græðikremið á kroppinn !!

  43. Ingigerður Konráðsdóttir (verified owner)

    Þetta krem virkar vel á exem sem ég er með í andlitinu. Mjög ánægð með það.

  44. Hulda (verified owner)

    Græðikremið virkar vel fyrir mig á líkaman,takk fyrir gott krem <3

  45. Hulda (verified owner)

    Yndislegt krem á kroppinn <3

  46. Hulda (verified owner)

    Yndislegt á kroppinn <3

  47. Hulda (verified owner)

    Elska þetta krem á kroppinn <3

  48. Hulda (verified owner)

    Frábært krem á kroppinn <3 Takk fyrir Hulda

  49. Sif Ingvarsdóttir (verified owner)

    Eina kremið fyrir exem sem mig klæjar ekki undan!

  50. Hulda (verified owner)

    Eitt af því besta fyrir minn kropp <3

  51. Hulda (verified owner)

    Er alveg rosalega ánægð með þetta krem fyrir allann líkaman !!

  52. Svanfríður Guðmundsdóttir (verified owner)

    Mjög græðandi og gott krem

  53. Guðbjörg Guðmundsdóttir (verified owner)

    Þetta krem hjálpar mér þegar húðin verður extra viðkvæm og nota ég það oft á kvöldin.

  54. Hulda (verified owner)

    Elska þetta krem aá allann kroppinn <3

  55. Anna María (verified owner)

    Elska það og hef mjög góða reynslu af því,staðalbúnaður 😄

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top